Liðsstyrkur til Fram

Jóhanna Melkorka er gengin til liðs við Fram.
Jóhanna Melkorka er gengin til liðs við Fram. Ljósmynd/Fram

Knattspyrnukonurnar Jóhanna Melkorka Þórsdóttir og Þórdís Embla Sveinbjörnsdóttir eru gengnar til liðs við Fram á lánssamningi. 

Jóhanna kemur frá Stjörnunni en Þórdís kemur frá Víkingi R. 

Jóhanna, sem er varnarmaður, var fastmaður í liði Fram í 1. deildinni á síðustu leiktíð en liðið hafnaði í sjöunda sæti deildarinnar. 

Þórdís, sem er aðeins 16 ára gömul, kom við sögu í fjórum leikjum hjá Víkingi í deildabikarnum í vetur. Þá kom hún einnig inn á sem varamaður er Víkingur vann Val í meistari meistaranna. 

Fyrsti leikur Fram er gegn ÍR á heimavelli þann sjötta maí.

Þórdís Embla Sveinbjörnsdóttir er einnig gengin til liðs við Fram.
Þórdís Embla Sveinbjörnsdóttir er einnig gengin til liðs við Fram. Ljósmynd/Fram
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka