Reiður Salah lét Klopp heyra það (myndskeið)

Mo Salah, ein skærasta stjarna enska knattspyrnuliðsins Liverpool, tók ekki vel í fyrirmæli frá knattspyrnustjóranum Jürgen Klopp í leik liðsins gegn West Ham á útivelli í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Salah byrjaði á bekknum í dag og kom inn á undir lok leiksins. Egyptinn var væntanlega ekki sáttur við það og brást illur við orðum frá þýska stjóranum áður en hann kom inn á.

Atvikið má sjá hér fyrir ofan, en mbl.is færir ykkur efni úr enska boltanum í samvinnu við Símann sport.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert