Löw þefar eina ferðina enn (Myndskeið)

AFP

Joachim Löw, landsliðsþjálfari Þýskalands, hefur vakið mikla athygli á EM en ekki endilega fyrir fótboltalegar tengingar. Þjálfarinn hefur m.a. náðst á mynd, þar sem hann setur hendurnar ofan í buxur sínar og þefar því næst af höndum sínum. Flestir eru sammála um að þessi hegðun þjálfarans sé ekki bara stórfurðuleg heldur einnig ógeðsleg.

Þjálfarinn hefur beðist afsökunar á framferðinu en myndskeið þar sem Löw stundar þetta, hafa nú verið dregin fram við hvert tækifæri.

Þetta myndskeið náðist á EM 2012 og þarna er Löw aðeins að athuga lyktina úr handakrikanum.

mbl.is

LEIKIR Í DAG - 4. MAÍ

Útsláttarkeppnin

LEIKIR Í DAG - 4. MAÍ

Útsláttarkeppnin
Loka