50 milljónir punda og Anelka fyrir Torres

Fernando Torres. Hefur hann leikið sinn síðasta leik með Liverpool?
Fernando Torres. Hefur hann leikið sinn síðasta leik með Liverpool? Reuters

Chelsea hefur nú í hyggju að bjóða Liverpool að fá sóknarmanninn Nicolas Anelka upp í kaupin á spænska framherjanum Fernando Torres. Liverpool hafnaði á föstudaginn tilboði frá Chelsea í Torres sem hljóðaði upp á 35 milljónir punda en enskir fjölmiðlar greina frá því í dag að nýtt tilboð sé á leiðinn frá Chelsea.

Chelsea hyggst bjóða 50 milljónir punda, 9,2 milljarða íslenskra króna, og er reiðubúið að láta Liverpool fá Frakkann Nicolas Anelka upp í kaupin.

Anelka er ekki alveg ókunnugur Liverpool en hann lék með liðinu hálft tímabil leiktíðina 2001-02.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert