Dortmund hitar upp í Regent's Park

Leikmenn Dortmund í Regent's Park í dag.
Leikmenn Dortmund í Regent's Park í dag. Ljósmynd/@BVB

Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri þýska liðsins Borussia Dortmund, birtist óvænt með sína menn í almenningsgarðinum Regent's Park í London í dag og lét þá fara í gegnum léttar æfingar þar.

Dortmund mætir Arsenal í Meistaradeild Evrópu á Emirates-leikvanginum í kvöld og gestir og gangandi í Regent's Park ráku upp stór augu þegar þeir sáu Þjóðverjana þarna á ferðinni. Fjöldi mynda af þeim hefur birst á samfélagsmiðlunum, líka myndir sem þýska félagið hefur sjálft sett inn á Twitter.

Dortmund hefur þegar tryggt sér sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar og hefur unnið alla fjóra leiki sína. Arsenal stendur mjög vel að vígi og kæmist áfram með sigri í kvöld.

Dortmund á Twitter.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert