Guardiola „Við gætum tapað eins og Liverpool“

Pep Guardiola og Phil Foden eftir leik kvöldsins
Pep Guardiola og Phil Foden eftir leik kvöldsins AFP/Ben Stansall

Pep Guardiola segir stigin þrjú vera einu yfirlýsingu kvöldsins en sigur Manchester City á Brighton var afar sannfærandi. Guardiola segir frammistöðuna skipta minna máli en stigasöfnunin á þessu stigi tímabilsins.

„Markatala Arsenal er of góð, það verður of erfitt að ná henni. Okkar markmið er að vinna leikina, við eigum fimm leiki eftir sem er mjög mikið, við hugsum um einn leik í einu“.

„Það getur allt gerst, við gætum tapað leikjum eins og Liverpool gerði gegn Crystal Palace og Everton. Í dag höldum við ró okkar, erum þakklátir fyrir sigurinn og einbeitum okkur að því að hvíla okkur fyrir næsta leik“.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert