Enn er Chelsea maður valinn sá besti í Serbíu

Nemanja Matic.
Nemanja Matic. AFP

Þriðja árið í röð er leikmaður frá Chelsea valinn leikmaður ársins í Serbíu en að þessu sinni varð miðjumaðurinn Nemanja Matic fyrir valinu.

Síðustu tvö árin hefur stríðsmaðurinn Branislav Ivanovic orðið fyrir valinu en Matic skákaði bakverðinum við að þessu sinni en hann hefur átt sérlega góðu gengi að fagna með Chelsea-liðinu á tímabilinu og er orðinn einn af lykilmönnum liðsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert