Bannan orðin samherji Eiðs Smára

Barry Bannan.
Barry Bannan. AFP

Eiður Smári Guðjohnsen og félagar hans í enska B-deildarliðinu Bolton fengu liðsstyrk í kvöld.

Miðjumaðurinn knái Barry Bannan gekk þá í raðir félagsins frá Crystal Palace en hann var áður í herbúðum Aston Villa.

Bannan er 25 ára gamall skoskur landsliðsmaður sem er uppalinn hjá Aston Villa.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert