Ince kominn til Derby

Tom Ince.
Tom Ince. Ljósmynd/twitter

Derby sem er ásamt Bournemouth í toppsæti ensku B-deildarinnar fékk í kvöld Tom Ince að láni frá Hull út leiktíðina.

Þessi 23 ára gamli miðjumaður hefur átt frekar erfitt uppdráttar hjá Hull frá því hann kom til liðsins frá Blackpool en hann er sonur Paul Ince sem lék meðal annars með Manchester United og Liverpool á árum áður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert