Palace keypti Zaha af United

Wilfried Zaha í leik með Crystal Palace.
Wilfried Zaha í leik með Crystal Palace. AFP

Enska knattspyrnufélagið Crystal Palace keypti í dag kantmanninn Wilfried Zaha af Manchester United, eftir að hafa selt hann þangað fyrir tveimur árum en verið með hann í láni megnið af tímanum.

Zaha, sem er 22 ára gamall og hefur spilað tvo A-landsleiki fyrir  England, lék aðeins tvo deildaleiki fyrir United en hefur hinsvegar leikið rúma 30 leiki fyrir Palace síðan félagið seldi hann.

Palace mun hafa greitt United þrjár milljónir punda og samdi við Zaha til hálfs sjötta árs en Manchester United greiddi 10 milljónir punda fyrir leikmanninn fyrir tveimur árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert