Mourinho bannar Pokemon

José Mourinho í æfingarferð Manchester United í Kína
José Mourinho í æfingarferð Manchester United í Kína AFP

Snjallsímaforritið PokemonGo hefur náð hraðri útbreiðslu um allan heim en knattspyrnustjóri Manchester United, José Mourinho, hefur sett stólinn fyrir dyrnar. Mourinho mun hafa bannað leikmönnum að spila Pokemon innan tveggja daga fyrir leik. 

Samkvæmt heimildum er ástæðan sú að Pokemon tekur einbeitinguna frá leiknum, hann vill að leikmenn einbeiti sér að leikáætluninni í aðdragandanum.

Pokemon Go er nokkurs konar sýndaveruleiki í símanum þar sem spilarar reyna að ná sem flestum tegundum af „pókemonum“ sem eru á víð og dreif. 

Mourinho var ráðinn til Manchester United í sumar og skrifaði undir 30 milljóna punda samning til þriggja ára. Hann hefur unnið fjölda titla með Chelsea, Inter Milan, Real Madrid og Porto. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert