Steven Gerrard, goðsögn í sögu Liverpool, mun yfirgefa bandaríska félagið Los Angeles Galaxy eftir tímabilið í MLS-deildinni sem nú er að ljúka. Hann var strax orðaður við endurkomu á Anfield og tók Jürgen Klopp, stjóri Liverpool, ekki fyrir þær sögur.
Sjá frétt mbl.is: Snýr Gerrard aftur heim?
„Steven Gerrard er alltaf velkominn aftur til Liverpool. Það hlýtur að koma gríðarlega á óvart,“ sagði Klopp í kaldhæðni. Gerrard æfði með Liverpool í fyrra þegar MLS-deildin var í fríi.
„Allt sem við ræðum saman mun vera áfram á milli okkar. Ég þekki Stevie það vel og þannig vil ég hafa hlutina,“ sagði Klopp.