Schumacher fluttur á sjúkrahús

Schumacher
Schumacher AFP

Þýski kappakstursökumaðurinn Michael Schumacher slasaðist á skíðum í Frakklandi i dag og var fluttur á sjúkrahús með höfuðáverka.

Franskir fjölmiðar segja að Schumacher hafi verið á skíðum á svæði sem nefnist Méribel í frönsku Ölpunum þegar slysið varð. Ekki er vitað hversu alvarleg meiðsli heimsmeistarans fyrrverandi eru, en þau eru þó ekki talin lífshættuleg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert