Wehrlein hvílir áfram

Antonio Giovinazzi á heiðurshring rétt fyrir upphaf kappakstursins í Melbourne.
Antonio Giovinazzi á heiðurshring rétt fyrir upphaf kappakstursins í Melbourne. AFP

Antonio Giovinazzi mun aka á ný fyrir Sauber í kappakstri helgarinnar í Sjanghæ í Kína þar sem Pascal Wehrlein hefur ekki náð fullum líkamsstyrk eftir bakmeiðsli í vetur.

Wehrlein ók á æfingum í Melbourne fyrir hálfum mánuði tæpum en gaf svo sætið eftir til varamannsins Giovinazzi vegna þrekskorts. Hann stóð sig vel í sínu fyrsta og fyrirvaralitla móti í formúlu-1, kom í mark í 12. sæti. 

Hefur Wehrlein sett sér sem markmið að verða fullklár í slaginn í næstu mótum þar á eftir, í Sakhír í Bahrain eftir rúma viku eða Sotsjí í Rússlandi í lok apríl. Kveðst hann bjartsýnn á að það gangi eftir.



 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert