Sama flugvél og Messi og félagar ferðuðust með

Lionel Messi.
Lionel Messi. AFP

Flugvélin sem brotlenti í Kólumbíu seint í gærkvöldi með leik­menn bras­il­íska knatt­spyrnuliðsins Chapecoen­se innanborðs var sú sama og Lionel Messi og félagar hans í argentínska landsliðinu ferðuðust með eftir tapleikinn á móti Brasilíu í undankeppni HM 10. þessa mánaðar.

Eins og fram hefur komið á mbl.is í morgun fórust 76 manns í flugslysinu en fimm manns lifðu slysið af.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert