Selma Sól Magnúsdóttir skoraði eina mark Nürnberg í 4:1 tapi liðsins gegn Eintracht Frankfurt í þýsku 1. deildinni í knattspyrnu kvenna í dag.
Mark Selmu kom strax á fyrstu mínútu þegar hún tók hornspyrnu sem fór inn í markið hjá nærstönginni.
Frankfurt jafnaði metin aðeins þremur mínútum síðar og Nürnberg var svo 3:1 undir í hálfleik.
Seinni hálfleikur byrjaði ekki betur en eftir aðeins níu mínútur skoraði Lara Prasnikar fjórða mark Frankfurt og stuttu síðar fór Selma af velli.
Nürnberg er í 11. sæti, fallsæti, með 12 stig eftir 19 leiki.