Xavi óvænt áfram með Barcelona

Xavi verður áfram með Barcelona eftir allt saman.
Xavi verður áfram með Barcelona eftir allt saman. AFP/Lluis Gene

Spánverjinn Xavi hefur ákveðið að halda áfram sem knattspyrnustjóri Barcelona, en hann gaf það út um áramótin að hann myndi láta af störfum hjá félaginu eftir tímabilið. 

Eftir stíf fundarhöld í dag hefur forráðamönnum félagsins tekið að sannfæra miðjumanninn fyrrverandi um að vera áfram með liðið.

Barcelona varð spænskur meistari undir stjórn Xavi á síðustu leiktíð, en gengi liðsins hefur ekki verið eins gott á þessari leiktíð.

Xavi lék 505 deildarleiki með Barcelona frá 1998 til 2015 og er goðsögn hjá félaginu.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka