Ein sú besta lætur staðar numið

Marta og Glódís Perla Viggósdóttir eigast við í vináttulandsleik árið …
Marta og Glódís Perla Viggósdóttir eigast við í vináttulandsleik árið 2017. Golli / Kjartan Þorbjörnsson

Marta, ein af bestu knattspyrnukonum sögunnar, hefur tilkynnt að hún leggi skóna á hilluna að yfirstandandi tímabili loknu með Orlando Pride í Bandaríkjunum.

Tímabilinu í Bandaríkjunum lýkur í lok ársins og lætur sóknarmaðurinn þá staðar numið.

Marta er 38 ára gömul og hefur leikið með Orlando frá árinu 2017. Áður hafði hún gert garðinn frægan í heimalandinu og Svíþjóð, þar sem hún er með ríkisborgararétt.

Hún er markahæsti leikmaður í sögu brasilíska kvennalandsliðsins með 116 mörk í 175 landsleikjum og hefur sex sinnum verið valin besti leikmaður heims af FIFA.

Þá varð Marta fyrsti leikmaðurinn í sögunni til þess að skora á fimm heimsmeistaramótum og sömuleiðis á fimm Ólympíuleikum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert