Sævar Atli Magnússon skoraði huggulegt mark fyrir Lyngby er liðið gerði 1:1-jafntefli á heimavelli gegn Vejle í dönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í kvöld.
Leiknismaðurinn afgreiddi boltann með glæsibrag upp í skeytin úr teignum eftir sendingu frá Kolbeini Birgi Finnssyni.
Markið má sjá hér fyrir neðan.
🇩🇰 Goal: Sævar Atli Magnússon | Lyngby 1-0 Vejlepic.twitter.com/bBXhwEycrS
— FootColic ⚽️ (@FootColic) April 26, 2024