Dortmund skellti PSG

Kylian Mbappe og hans menn fóru illa að ráði sínu …
Kylian Mbappe og hans menn fóru illa að ráði sínu í kvöld AFP/FRANCK FIFE

Borussia Dortmund sigraði PSG í fyrri undanúrslitaleik liðanna í Meistaradeild Evrópu í fótbolta á heimavelli þeirra gulklæddu.

Leikurinn í kvöld var hin mesta skemmtun. Niclas Füllkrug kom heimamönnum yfir eftir rúmlega hálftíma leik með glæsilegri afgreiðslu framhjá Gianluigi Donnarumma í marki PSG og staðan í hálfleik var 1:0.

Í upphafi síðari hálfleiks áttu Parísarmenn tvö stangarskot í sömu sókninni, fyrst Kylian Mbappe og síðan Achraf Hakimi og lukkudísirnar á bandi Dortmund. Bæði lið fengu færi til að bæta við mörkum en allt kom fyrir ekki og Dortmund vann að lokum 1:0.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert