Malmö sænskur bikarmeistari

Malmö-menn á Víkingsvelli sumarið 2022.
Malmö-menn á Víkingsvelli sumarið 2022. mbl.is/Hákon Pálsson

Malmö er sænskur bikarmeistari í 16. sinn eftir sigur á Djurgården í vítaspyrnukeppni í úrslitaleiknum í Malmö í dag. 

Staðan var 1:1 eftir venjulegan leiktíma og framlengingu en Malmö-menn sýndu meiri taugar í vítaspyrnukeppninni og unnu hana örugglega, 4:1. 

Daníel Tristan Guðjohnsen er meiddur og var því ekki í leikmannahópi Malmö í dag. 

Ásamt því að vera bikarmeistari er Malmö í frábærri stöðu í deildinni með fullt hús stiga eða 18 eftir sex umferðir, sex stigum á undan Halmstad í öðru. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert