Sabrina Wittmann hefur verið ráðin þjálfari þýska liðsins Ingolstadt. Hin 32 ára Wittmann er fyrsta konan sem þjálfar atvinnumannalið karla í Þýskalandi.
Wittmann lætur af störfum sem þjálfari U19 ára liðs félagsins til að taka við aðalliðinu en Ingolstadt spilar í þriðju efstu deild.
„Ég vildi allra mest fá fyrsta tækifæri mitt hjá Ingolstadt. Félagið skiptir mig miklu máli og er lið heimabæjar míns“.
Segir Wittmann við heimasíðu Ingolstadt.
Wittmann fylgir í fótspor þriggja kvenna, þeirra Carolina Morace (Viterbese, Sería C, ítölsk) og Corinne Diacre (Clermont, 2. deild, frönsk) og hinnar portúgölsku Helena Costa sem einnig þjálfaði Clermont.