Real Madrid vann sterkan, 3:0, heimasigur á Cadiz í spænsku 1. deildinni í knattspyrnu í kvöld og er nálægt því að tryggja sér spænska meistaratitilinn.
Real er nú með 87 stig á toppi deildarinnar.
Staðan var 0:0 í hálfleik en fyrsta markið skoraði Brahim Diaz eftir stoðsendingu frá Luka Modric á 51. mínútu.
Jude Bellingham skoraði svo annað mark leiksins á 68. mínútu en hann kom inn á af bekknum aðeins tveimur mínútum fyrir það.
Bellingham var ekki í byrjunarliði því hann var að glíma við smávægileg veikindi og Carlo Ancelotti, knattspyrnustjóri Real sagði að hann væri ekki alveg búin að jafna sig á þeim. Hann lét þau samt ekki stoppa sig.
Joselu skoraði svo þriðja mark Real á 93. mínútu.
Thibaut Courtois spilaði hans fyrsta leik og hélt hreinu eftir erfið meiðsli.
Barcelona og Girona eigast við í dag en liðin eru í 2. og 3. sæti deildarinnar og ef Barcelona vinnur ekki leikinn þá er Real sófameistari en fjórar umferðir eru eftir af mótinu.