Marco Reus tilkynnti í gær að hann væri á förum frá þýska knattspyrnufélaginu Borussia Dortmund eftir 12 ár hjá félaginu og í dag lagði hann upp tvö mörk og skoraði eitt.
Dortmund komst 3:0 yfir eftir aðeins 29 mínútur en Reus lagði upp þriðja markið og skoraði svo fjórða á 34. mínútu
Hann hélt svo áfram í seinni hálfleik og lagði upp fimmta mark Dortmund á 64. mínútu. Honum var svo skipt út af á 66. mínútu og hlaut standandi lófatak.