Dagur fór meiddur af velli

Benjamin Cremaschi í Inter Miami og Dagur Dan Þórhallsson.
Benjamin Cremaschi í Inter Miami og Dagur Dan Þórhallsson. AFP/Alex Menendez

Knattspyrnumaðurinn Dagur Dan Þórhallsson fór meiddur af velli í þegar Orlando City tapaði, 1:0, gegn Cincinnati í bandarísku MLS-deildinni í nótt.

Dagur var í byrjunarliði að vana hjá Orlando en fór meiddur af velli á 45. mínútu eftir höfuðhögg.

Hann fékk boltann í höfuðið eftir fasta aukaspyrnu og fór niður en reyndi að halda áfram eftir það. Stuttu síðar settist hann þó aftur niður og var tekin af velli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert