Glæsimark Arnórs (myndskeið)

Arnór Ingvi Traustason skoraði glæsimark í dag
Arnór Ingvi Traustason skoraði glæsimark í dag Ljósmynd/Szilvia Micheller

Arnór Ingvi Traustason skoraði sannkallað draumamark í leik Norrköping og AIK í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta. Markið dugði þó skammt þar sem heimamenn í AIK fóru með sannfærandi sigur af hólmi.

Arnór Ingvi minnkaði muninn í 3:2 með viðstöðvalausu utanfótarskoti langt fyrir utan teig. AIK komst í 3:0 en gestirnir í Norrköping eygðu von um endurkomu með marki Arnórs. AIK setti þá fótinn aftur á bensíngjöfina og leiknum lauk með 6:2 sigri stórliðsins frá Stokkhólmi.

Arnór fór af velli fyrir landa sinn, Ísak Andra Sigurgeirsson á 82. mínútu.

Markið má sjá hér fyrir neðan


 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert