Norður landamet - en brostnar vonir

Jón Arnar Magnússon, Tindastóli, hafnaði í 5. sæti í sjöþraut heimsmeistaramótsins og bætti eigið Norðurlandamet um 123 stig, fékk 6.293 stig. Hann var 62 stigum frá bronsverðlaunum. Þrátt fyrir að Jón hafi bætt sig mest allra keppenda tókst honum ekki að ná marki sínu á mótinu, það er að vinna gull- eða silfurverðlaun, a.m.k. að leika sama leikinn og á síðasta heimsmeistaramóti er hann hafnaði í þriðja sæti. Glæsilegt Norðurlandamet fellur því að nokkru leyti í skugga af þessari staðreynd.Pólverjinn, Sebastian Chmara, Evrópumeistari í sjöþraut, varð sigurvegari sjöþrautarinnar, fékk 6.386 stig eftir æsilega baráttu við Erki Nool, Eistlandi, í síðustu grein. Nool hafði farið illa að ráði sínu í hástökki á fyrri degi og dróst aftur úr um stund, en sérlega góður árangur í stangarstökki, 5,50 metrar, á síðari degi kom honum í fremstu röð á ný. Með árangrinum í stangarstökkinu opnaðist möguleikinn og keppni hans og Chmara í 1.000 metra hlaupinu var mikil sem endaði með naumum sigri Pólverjans og um leið innsiglaði hann sigur sinn í þrautinni. Nool fékk 6.374 stig. Tékkinn Roman Sebrle hreppti þriðja sætið, hlaut 6.319 stig og landi hans Tomás Dvorák varð fjórði, önglaði saman 6.309 stigum. Því næst kom Jón, Rússinn Lev Lobodin í sjötta sæti með 6.153 stig og lestina rak Ungverjinn Dezö Szabó, fékk 6.029 stig. Áttundi keppandinn, Chris Huffins, Bandaríkjunum, hætti keppni eftir 5. grein og kenndi um meiðslum.

 Eftir keppni á fyrri degi var Jón í 4. sæti með 3.546 stig, aðeins fjórum stigum á eftir Dvorák er var í 2. sæti. Sebrle var fyrstur og Chmara í 3. sæti. Þá voru Huffins og Nool skammt á eftir og ljóst að hörð keppni yrði um verðlaunasæti og því mætti ekkert bera út af.  Í fyrstu grein dagsins, 60 metra grindahlaupi, varð Jón í 6. sæti á 8,09 sekúndum, 10/100 frá Íslandsmeti sínu og þótt eflaust væri til of mikils ætlast að hann jafnaði þann árangur var Jón nokkuð frá því sem vonir stóðu til um. Fékk hann 959 stig fyrir tíma sinn. Á næstsíðustu grind virtist sem Jón missti jafnvægið og hafði það sín áhrif og minnkaði hraðann.  Lobodin var fyrstur á 7,81 sek. og hlaut 1.030 stig. Dvorák varð annar á 7,84 og Huffins þriðji, 7,91. Allir fengu þeir yfir 1.000 stig hver. Sebrle og Chmara voru hins vegar á undan Jóni sem var í 5. sæti í stigakeppninni eftir greinina.  Því næst var tekið til við stangarstökkið og þar reið á að Jón stykki a.m.k. 5,10 metra, helst 5,20, til þess að eiga góða möguleika á verðlaunasæti. Tékkarnir höfðu báðir nokkurt forskot á Jón fyrir þessa grein og vitað var að Chmara gæti stokkið hærra en Jón. Hann byrjaði á því að fara auðveldlega yfir 4,80 metra og síðan 5 metra. Þegar röðin kom að 5,10 byrjuðu vandræðin og hann felldi í þrígang. Jón vann því færri stig en ella á Tékkana sem fóru 4,80 og 4,90 og Chmara jók forskot sitt á Jón er hann stökk 5,20. Nool jafnaði hins vegar sinn besta árangur, stökk 5,50 og vann m.a. rúmlega 150 stig á Jón Arnar svo dæmi sé tekið. Það sýnir vægi þessarar greinar þar sem rúm 30 stig fást til viðbótar fyrir hverja 10 sm, svipað og hverja þriggja sentímetra hækkun í hástökki.  Eitt þúsund metra hlaup var síðasta greinin að vanda og þar bætti Jón Arnar sinn fyrri árangur um fjórar sekúndur, hljóp á 2.39,55 mínútum en það dugði skammt, tveggja sekúndna betri tími hefði skilað verðlaunasæti að því gefnu að aðrir hefðu ekki hlaupið á betri tíma. Jón hafnaði í þriðja sæti í hlaupinu, á eftir Chmara og Nool, en tveimur sekúndum á undan Tékkunum.  Eftir stóð 5. sætið og Norðurlandamet, en brostnar vonir. Reiknað hafði verið með að keppnin yrði jöfn og 6.300 til 6.400 stig þyrfti í verðlaunasæti. Það gekk eftir. Hjá Jóni vantaði herslumuninn til þess að allt gengi eftir. Jón var 26 stigum frá 3. sæti keppninnar, þótt endalaust megi segja ef, skal á það bent að 10 sm hærra stökk í stangarstökki hefði gefið 31 stig til viðbótar og 3 sm í hástökki 28 stig. Það sýnir hins vegar aðeins að það verður alltaf að gera sitt besta, hið næstbesta dugir ekki. Ívar Benediktsson skrifar
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert