Alþjóðlegi tennisdagurinn á morgun

Alþjóða tennisdagurinn hefur verið haldinn undanfarin tvö ár.
Alþjóða tennisdagurinn hefur verið haldinn undanfarin tvö ár.

Á morgun, þriðjudaginn 10.mars, er Alþjóðlegi tennisdagurinn, Special Olympics European Tennis Day. Þetta er þriðja árið í röð sem þessi dagur er haldinn.

Í tilefni dagsins mun Tennissamband Íslands bjóða nemendum Klettaskóla í Tennishöllina í Kópavogi þar sem ungmenni úr unglingalandsliði Íslands munu sína færni sína og leika tennis með nemendum frá klukkan 09:30 – 11:30.

Á vef Tennissambands Íslands segir að ungmennin muni spila stóran þátt í deginum með þátttöku sinni og séu mikilvæg fyrirmynd. Í gegnum sýningu, leik og kennslu muni þau auka þekkingu fatlaðra einstaklinga á mikilvægi reglulegrar hreyfingu auk þess sem fyrri ár sína að þau eru miklir gleðigjafar.

Viðburðurinn er á vegum Tennissambands Evrópu og er haldinn í samstarfi við Special Olympics í ár. Markmið viðburðarins er að efla tengsl íþróttarinnar við einstaklinga með andlega og/eða líkamlega fötlun og kynna fyrir þeim skemmtilega hreyfingu sem þjálfar samhæfingu, samvinnu og hreyfigetu.

Miðpunktur dagsins verður tennissýning í New York þar sem meðal annars Roger Federer mun etja kappi við hina rísandi stjörnu Grigor Dimitrov. Í kvennaflokki munu gömlu tenniskempurnar Monica Seles og Gabriela Sabatini mætast.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert