Tímamót hjá Tiger Woods

Tiger Woods spilaði oftast í rauðu þegar hann var upp …
Tiger Woods spilaði oftast í rauðu þegar hann var upp á sitt besta. MIKE EHRMANN/Mike Ehrmann

Golfgoðsögnin Tiger Woods tilkynnti í gær að hann hefði slitið samstarfi sínu við íþróttavörumerkjarisann Nike eftir 27 ára samstarf.

Í yfirlýsingu Bandaríkjamannsins þakkar hann fyrir farsælt samstarf en segist hvergi nærri hættur í golfinu. Ætlar hann sér að keppa eins mikið og líkaminn leyfir á nýju ári.

Woods þénaði um 500 milljónir dollara fyrir samninga sína við Nike í gegnum tíðina. Gerði hann rauðan Nike-bol goðsagnarkenndan á meðan á bestu árum ferilsins stóð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert