Scottie Scheffler frá Bandaríkjunum vann Mastersmótið í golfi í annað sinn á ferlinum en hann tryggði sér sigurinn í kvöld með sannfærandi frammistöðu á lokahringnum á Augusta-vellinum í Atlanta.
Scheffler, sem er efstur á heimslistanum og var sigurstranglegastur fyrir mótið, var með eins höggs forystu fyrir lokahringinn en lék hann á 68 höggum. Þar með vann hann með fjórum höggum, á 11 undir pari vallarins, en Ludvig Aberg frá Svíþjóð náði öðru sætinu á sjö höggum undir pari.
Tommy Fleetwood frá Englandi og Bandaríkjamennirnir Collin Morikawa og Max Homa deildu þriðja til fimmta sætinu á fjórum höggum undir pari.