Fór á kostum í undanúrslitum

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir átti stórleik.
Jóhanna Margrét Sigurðardóttir átti stórleik. Ljósmynd/Jon Forberg

Skara er komið í forystu gegn Sävehof í undanúrslitum í úrslitakeppni sænska handboltans eftir útisigur í fyrsta leik í kvöld, 24:23.

Jóhanna Margrét Sigurðardóttir átti stórleik fyrir Skara og skoraði átta mörk. Var hún markahæst í sínu liði. Hún gerði fjögur af fimm síðustu mörkunum á spennandi lokakafla.

Áldís Ásta Heimisdóttir gerði eitt mark fyrir Skara, en þrjá leiki þarf til að fara í úrslitaeinvígið.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert