Pólverji til liðs við KA

Kamil Pedryc er nýr liðsmaður KA.
Kamil Pedryc er nýr liðsmaður KA. Ljósmynd/KA

Pólski handknattleiksmaðurinn Kamil Pedryc skrifaði í dag undir tveggja ára samning við KA.

Akureyrarfélagið skýrði frá þessu á heimasíðu sinni en þar kemur fram að Pedryc sé 28 ára gamall línumaður, tæpir tveir metrar á hæð og 100 kílóa þungur, og komi frá Zaglebie Lubin í Póllandi.

Áður hafi hann leikið með Kalisz og Tarnów í Póllandi. Þar á undan lék hann með Braunschweig í Þýskalandi.

Pedryc er annar leikmaðurinn sem KA fær fyrir næsta tímabil en fyrir skömmu samdi Bjarni Ófeigur Valdimarsson við félagið. Hann hefur leikið með Minden í þýsku B-deildinni í vetur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert