Tvö Íslendingalið í undanúrslit

Guðmundur Guðmundsson þjálfar Fredericia.
Guðmundur Guðmundsson þjálfar Fredericia. mbl.is/Kristinn Magnússon

Fredericia tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum í baráttunni um danska meistaratitilinn í handbolta með stórsigri á GOG á heimavelli, 34:24.

Guðmundur Guðmundsson þjálfar Fredericia. Einar Þorsteinn Ólafsson komst ekki á blað hjá liðinu. Með sigrinum tryggði Fredericia sér annað sæti 2. riðils og fer í undanúrslit með Skjern.

Ribe-Esbjerg tryggði sér einnig sæti í undanúrslitum með sigri á Mors-Thy á útivelli, 28:26. Elvar Ásgeirsson skoraði þrjú mörk fyrir gestina og Ágúst Eli Björgvinsson varði sjö skot í markinu, þar af eitt víti.  

Ribe-Esberg endar í öðru sæti riðils 1 og fer í undanúrslit með Aalborg.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert