Það verður ekki af Luis Suárez tekið að hann er frábær knattspyrnumaður en eitthvað virðist ekki í lagi. Hann var nú rétt í þessu gripinn af því að bíta Giorgio Chiellini, varnarmann Ítalíu, í öxlina í viðureign Úrúgvæ og Ítalíu á HM í knattspyrnu.
Frægt er þegar Suárez beit Branislav Ivanovic í leik Liverpool og Chelsea og fékk fyrir það tíu leikja keppnisbann. Hann fékk einnig sjö leikja keppnisbann fyrir að bíta andstæðing þegar hann var í herbúðum Ajax.
Hann virðist hins vegar hvergi nærri hættur eins og meðfylgjandi myndbönd sýna.