Cleveland Cavaliers unnu fyrsta leikinn í úrslitakeppni NBA deildarinnar í körfubolta á heimavelli sínum í dag. Orlando Magic eru í úrslitakeppninni í fyrsta sinn síðan 2020.
Donovan Mitchell skoraði 30 stig fyrir Cleveland og Jarrett Allen tók 18 fráköst. Paulo Banchero skoraði 24 stig fyrir Orlando, tók 7 fráköst og gaf 5 stoðsendingar.
Vinna þarf fjóra leiki til að komast áfram í næstu umferð.