Aþena er komin í 1:0-forystu í úrslitaeinvígi sínu gegn Tindastóli þar sem sæti í úrvalsdeild kvenna í körfubolta er í boði.
Aþena var með mikla yfirburði í Austurbergi í kvöld og vann 80:45-risasigur. Staðan í hálfleik var 42:27 og Aþena hélt áfram að bæta í forskotið í seinni hálfleik.
Sianni Martin skoraði 17 stig og tók átta fráköst fyrir Aþenu. Jovanka Ljubetic bætti við 16 stigum. Emese Vida gerði 19 stig fyrir Tindastól.
Það lið sem er fyrr til að vinna þrjá leiki leikur í úrvalsdeildinni á næsta tímabili.