Samkvæmt upplýsingum frá Hörpu Hlín Þórðardóttir hjá Icelandoutfitters þá hófst veiði í Skjálfandafljóti í gær og fór vel af stað.
Samtals komu á land 11 laxar og veiddust sjö á svokölluðum austurbakka efri, tveir af vesturbakkanum, einn í Barnafelli og einn úr Skipapolli. Á Pálsbreiðu veiddist einn 100 cm sem reyndist vigtaður vera 10,3 kíló, en sá minnst af þessum 11 reyndist vera 4,5 kiló.
Fram kom hjá Hörpu að Skjálfandafljótið væri vatnsmikið, en ekki skolið og nánast hreint. Hún sagði að þetta væri með allra bestu opnunardögum frá upphafi í fljótinu.
Lengd á laxi | Veiðisvæði | Veiðimaður | Dagsetning Dags. |
---|---|---|---|
101 cm | Vatnsdalsá | Erlendur veiðimaður | 29. september 29.9. |
101 cm | Eystri-Rangá | Grzegorz Loszewski | 27. september 27.9. |
105 cm | Hvítá við Iðu | Katrín Tanja Davíðsdóttir | 24. september 24.9. |
101 cm | Víðidalsá | Jón Eðvald Halldórsson | 22. september 22.9. |
107 cm | Grímsá | Jón Jónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Miðfjarðará | Agnar Sigurjónsson | 22. september 22.9. |
101 cm | Hvítá við Iðu | Gunnar Pétursson | 20. september 20.9. |