Samkvæmt skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis námu bónusgreiðslur til starfsmanna verðbréfasviðs Landsbankans 194 milljónum króna haustið 2007. Á sambærilegu tímabili voru tekjur sviðsins einungis 178 milljónir. Þetta þýðir með öðrum orðum að Landsbankinn hafi metið réttmætar bónusgreiðslur ofan á laun verðbréfamiðlara bankans hærri en tekjurnar sem verðbréfasviðið skapaði bankanum.
Fram kemur í umfjöllun nefndarinnar um hvatakerfi starfsmanna Landsbankans að almennt hafi bónusgreiðslur starfsmanna Landsbankans aukist mikið milli ára þó svo að tekjur þeirra starfsviða sem rannsóknarnefndin athugaði hafi staðið í stað.
Rannsóknarnefndin kemst meðal annars að þeirri meginniðurstöðu í umfjöllun sinni um hvatakerfi bankanna á árunum 2004 til 2008 að bónusgreiðslur starfsmanna bankanna hafi verið án eiginlegra tengsla við frammistöðu þeirra í starfi.