Jákvæður viðskiptajöfnuður

mbl.is/Ernir

Viðskiptajöfnuður við útlönd mældist hagstæður um 11,7 milljarða króna á þriðja ársfjórðungi samanborið við 32,1 milljarða óhagstæðan jöfnuð fjórðunginn á undan.

Þetta kemur fram í tölum frá Seðlabanka Íslands. Afgangur af vöruskiptum við útlönd var 33,5 milljarðar og 27,3 milljarðar á þjónustuviðskiptum. Jöfnuður þáttatekna var hinsvegar neikvæður um 47,6 milljarða.

Halla á þáttatekjum má eins og áður rekja til innlánsstofnana í slitameðferð. Reiknuð gjöld vegna þeirra námu 44,4 milljarðar og tekjur 17 milljarðar. Jöfnuður þáttatekna án áhrifa innlánsstofnana í slitameðferð var óhagstæður um 21,6 milljarðar og viðskiptajöfnuður hagstæður um 39,1 milljarðar.


Erlendar eignir þjóðarbúsins námu 4.529 milljarðar í lok ársfjórðungsins en skuldir 13.671 milljarðar. Hrein staða við útlönd var því neikvæð um 9.142 milljarða og lækka nettóskuldir um 361 milljarð á milli ársfjórðunga. Að frátöldum innlánsstofnunum í slitameðferð námu eignir þjóðarbúsins 2.529 milljarðar og skuldir 3.361 milljarðar og var hrein staða þá neikvæð um 833 milljarðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK