Bakslag í rannsókn SFO

Lögreglumenn í skrifstofubyggingu Vincents Tchenguiz í Lundúnum.
Lögreglumenn í skrifstofubyggingu Vincents Tchenguiz í Lundúnum. Reuters

Efnahagsbrotadeild bresku lögreglunnar, Serious Fraud Office (SFO), mun skila gögnum sem hald var lagt á í húsleit á skrifstofu kaupsýslumannsins Vincents Tchenguiz. Viðurkennir SFO að ákveðin mistök hafi verið gerð við rannsóknina en Tchenguiz var handtekinn ásamt bróður sínum, Robert, í tengslum við viðskipti við Kaupþing.

Níu mánuðir eru síðan þeir bræður voru handteknir auk sjö annarra og færðir til yfirheyrslu í umfangsmiklum aðgerðum á vegum SFO í Lundúnum í tengslum við rannsókn stofnunarinnar á aðdraganda falls Kaupþings.

Í bréfi sem SFO sendi til Vincents Tchenguiz í gær kemur fram að mistök hafi verið gerð og ekki hafi réttar upplýsingar legið fyrir þegar handtökuskipunin var gefin út. Gögn bendi til þess að handtökuskipunin hafi ekki verið byggð á réttum gögnum og því hefði ekki átt að gefa hana út.

Húsleit var gerð hjá tveimur fyrirtækjum og á heimilum átta einstaklinga. Embætti sérstaks saksóknara, sem unnið hefur með SFO undanfarin misseri, aðstoðaði við aðgerðirnar.

Aðgerðirnar eru liður í rannsókn SFO á greiðu aðgengi bræðranna Roberts og Vincents Tchenguiz að lánsfé hjá hinum fallna banka. Þeir voru báðir handteknir og yfirheyrðir. Í sameiginlegri yfirlýsingu sem þeir sendu frá sér kveðast þeir þess fullvissir að rannsóknin muni ekkert misjafnt leiða í ljós.

Samkvæmt heimildum breska blaðsins Telegraph ætlar SFO ekki að hætta rannsókn á viðskiptum þeirra bræðra og hefur óskað eftir því að hluti þeirra gagna sem hald var lagt á við húsleitirnar verði geymd áfram og skilað síðan í janúar. 

Bæði Vincent and Robert Tchenguiz kærðu handtökurnar og húsleitirnar. Vitnaleiðslur í málinu eru boðaðar í febrúar þar sem kærur þeirra verða teknar fyrir.

Í síðustu viku hótuðu fjárfestingafélög í eigu Tchenguiz fjölskyldunnar SFO málsókn og að farið yrði fram á 100 milljónir punda í skaðabætur fyrir tafirnar á málinu. Fasteignafélag Vincents Tchenguiz, Peverel, fór í skiptameðferð einungis nokkrum dögum eftir að hann var handtekinn. 

Í fréttaskýringu sem birtist í Morgunblaðinu í mars sl. kom fram að tveir fyrrverandi stjórnenda Kaupþings, þeir Sigurður Einarsson, sem var stjórnarformaður, og Ármann Þorvaldsson, sem stýrði rekstri bankans í Bretlandi, voru handteknir í aðgerðunum. Auk þeirra voru þeir Guðmundur Þór Gunnarsson, sem var viðskiptastjóri gagnvart Tchenguiz-bræðrunum, Bjarki Diego, sem stýrði útlánasviði bankans, og Guðni Níels Aðalsteinsson, sem var yfir fjárstýringu, allir handteknir.

Vincent Tchenguiz fagnar ákvörðun SFO í viðtali við Telegraph í gærkvöldi en það dragi úr gleði hans hversu langan tíma þetta hafi tekið.

Sjá umfjöllun Telegraph í heild

Robert og Vincent Tchenguiz.
Robert og Vincent Tchenguiz.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka