Endurgreiða 116 milljarða króna

Reuters

Í þessum mánuði endurgreiða ríkissjóður og Seðlabanki Íslands 116 milljarða króna af lánum frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum (AGS) og Norðurlöndunum. Um er að ræða fyrirframgreiðslu á 289 milljónum SDR, jafnvirði um 55,6 milljarða króna til AGS og 366 milljónum evra, jafnvirði um 60,5 milljarða króna til Norðurlandanna.  

Fjárhæðin sem endurgreidd er nemur rösklega 20% þeirra lána  sem tekin voru hjá AGS og Norðurlöndunum í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda og AGS. Í fréttatilkynningu frá Seðlabankanum segir að aðgerðin í dag miði að því að greiða niður lán til skemmri tíma og draga þannig úr kostnaði við gjaldeyrisforðahald. Ákvörðun um endurgreiðslu er tekin með hliðsjón af tiltölulega rúmri lausafjárstöðu ríkissjóðs og Seðlabankans í erlendri mynt næstu misseri.

Endurgreiðslan nær til gjalddaga sem falla á árinu 2013 í tilfelli AGS-lána. Greiðslur til Norðurlandanna eru vegna gjalddaga sem falla á árunum 2014, 2015 og að hluta árið 2016.

Lán AGS og Norðurlandanna námu í upphafi um 3,4 milljörðum evra eða sem svarar um 564 milljörðum króna miðað við núverandi gengi. Endurgreiðslan hefur ekki áhrif á hreinar skuldir ríkissjóðs en heildarskuldir ríkissjóðs lækka um u.þ.b. 3,4% af VLF. Erlend skuldastaða þjóðarbúsins lækkar í heild um 6,6% af VLF við þessar breytingar en nettóskuldastaða er óbreytt.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK