Sólveig Hrönn Sigurðardóttir hefur bæst við ört stækkandi hóp starfsfólks Carbfix og stýrir tæknisviði Carbfix (CTO).
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Carbix en þar segir að Sólveig hafi áður verið forstöðumaður upplýsingatæknireksturs hjá Alvotech og þar á undan forstöðumaður þjónustustýringar hjá Reiknistofu bankanna. Hún er með B.Sc.-gráðu í tölvunarfræði, B.Ed.-gráðu í kennslufræði og MIM í upplýsingastjórnun.
„Það eru forréttindi að vera hluti af Carbfix-teyminu, þar sem unnið er af krafti og eldmóð að raunverulegum loftslagsaðgerðum. Ég er umkringd hæfileikaríku fólki sem hefur ekki einungis sýnt fram á getu sína til að ná árangri, heldur einnig þann drifkraft sem þarf til að takast á við loftslagsvána. Ég er er full tilhlökkunar til að slást í för með Carbfix í þessari mikilvægu baráttu,“ er haft eftir Sólveigu í tilkynningunni.
Carbfix er brautryðjandi á heimsvísu í bindingu CO2 í bergi neðanjarðar. Fyrirtækið hefur síðan 2012 bundið yfir 90 þúsund tonn af CO2 á Íslandi með eigin tækni sem er örugg, sannreynd, varanleg og hagkvæm. Stefnt er að frekari innleiðingu hennar bæði á Íslandi og erlendis.
Á síðasta ári var tilkynnt að Coda Terminal, verkefni Carbfix, sem er eitt umfangsmesta loftslagsverkefni á Íslandi. Þetta verkefni markar tímamót í baráttunni við hlýnun jarðar og er grundvöllur fyrir nýja, loftslagsvæna atvinnugrein, þar sem Carbfix-tæknin mun binda CO2 í mun stærri mæli en áður. Verkefnið hlaut 16 milljarða íslenskra króna styrk frá Nýsköpunarsjóði Evrópusambandsins.