Spáir hruni í Grikklandi

Alexis Tsipras
Alexis Tsipras AFP

„Strangleiki grískra lánadrottna á alþjóðamarkaði mun leiða til félagslegs- og efnahagslegs hruns“ að mati Alexis Tsipras, leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Grikklandi og róttæks vinstri manns. Á fundi með samsteypuflokknum SYRIZA sagði hann að í september yrði nóg komið og að ómögulegt væri að stýra frá hruni þá. 

Hann kallaði eftir neyðarfundi evrópskra ríkja til að ræða um gríska skuldavandann sem enn hefur áhrif á alþjóðlega markaði. „Vandamál Grikklands er ekki bara vandamál landsins, heldur partur af evrópsku vandamáli“. 

Á morgun munu eftirlitsmenn frá Alþjóða gjaldeyrissjóðnum og evrópska seðlabankanum koma til Grikklands til að yfirfara stöðu ríkisfjármála sem mun ákvarða hvort Grikkir fái næsta skammt af neyðarláni í september. Gríski fjármálaráðherrann, Yannis Stournaras viðurkenndi í síðustu viku að Grikkir væru enn eftir á með áætlanir um niðurskurð og að draga úr fjárlagahallanum.

Flokkur Tsipras varð annar stærsti flokkur Grikklands eftir kosningarnar í júní, en þar börðust þeir fyrir því að samþykkja ekki þær áætlanir sem fyrri ríkisstjórn og lánadrottnar höfðu gert um efnahagsaðgerðir. Vildi Tsipras frekar að lánadrottnar slökuðu á kröfum sínum og að aðhaldsaðgerðum yrði frestað. 

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK