Notendur QuizUp yfir 20 milljónir

Þorsteinn B. Friðriksson hjá Plain Vanilla
Þorsteinn B. Friðriksson hjá Plain Vanilla mbl.is/Ómar Óskarsson

Notendur QuizUp-spurningaleiksins eru orðnir yfir 20 milljónir. Í tilkynningu kemur fram að notendum hafi fjölgað hratt síðan leikurinn var gefinn út í nóvember sl. en til að byrja með gátu aðeins notendur með iOS-stýrikerfið spilað hann. Í mars varð leikurinn fáanlegur fyrir Android og hefur notendum fjölgað um að jafnaði 100 þúsund undanfarnar vikur.

Alls hafa leikmennirnir spilað rúma tvo milljarða leikja, sem þýðir um sex milljónir leikja á sérhverjum degi. Í QuizUp er að finna yfir 220 þúsund spurningar í rúmlega 400 flokkum.

Plain Vanilla hefur gefið út leikinn í sérstakri útgáfu fyrir Þýskaland og Spán þar sem notendur geta svarað spurningum í leiknum á sínu móðurmáli á meðan þeir keppa við spilara um heim allan sem svara sömu spurningum á ensku. Sat leikurinn á spænsku um tíma í efsta sæti í App Store á Spáni fyrir ókeypis leiki en situr nú í þrettánda sæti. Unnið er að því að þýða leikinn yfir á fleiri tungumál, t.a.m. kínversku, og laga hann enn frekar að ólíkum löndum.

„Síðastliðið hálft ár hefur verið mikið ævintýri. Leikurinn hefur vaxið hraðar en við þorðum nokkurn tímann að vona og það er ótrúlegt að vita til þess að yfir 20 milljónir manna hafi sótt sér leikinn,“ segir Þorsteinn Baldur Friðriksson, stofnandi og forstjóri Plain Vanilla, í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK