Beiðni um flýtimeðferð gegn Kaffitári hafnað

Aðalheiður Héðinsdóttir, forstjóri Kaffitárs.
Aðalheiður Héðinsdóttir, forstjóri Kaffitárs. Kristinn Ingvarsson

Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð héraðsdóms þar sem beiðni Isavia um flýtimeðferð á ógildingarmáli gegn Kaffitári vegna úrskurðar er varðaði gögn úr for­vals­ferl­inu um aðstöðu í Flug­stöð Leifs Ei­ríks­son­ar. 

Úrsk­urðar­nefnd upp­lýs­inga­mála hef­ur kom­ist að þeirri niður­stöðu að Isa­via beri að af­henda gögn­in.

Fyrir Hæstarétti krafðist Isavia einnig ómerkingu úrskurðar héraðsdóms með vísan til meints vanhæfis dómstjóra dómstólsins. Hæstiréttur hafnaði kröfunni.

Isavia taldi að dómarinn hefði verið vanhæfur þar sem hann var varaformaður úrskurðarnefndar þegar nefndin kvað upp fyrrnefndan úrskurð. Hæstiréttur benti hins vegar á að dómstjóri hefði ekkert boðvald yfir dómara. Því veldur vanhæfi dómstjóra ekki vanhæfi dómara.

Beiðni um flýtimeðferð var hafnað þar sem ekki var talin brýn þörf á skjótri meðferð málsins.

Líkt og áður hefur komið fram snýst málið um gögn úr forvali um aðstöðu í Flug­stöð Leifs Ei­ríks­son­ar.  Ástæðan fyr­ir því að Isa­via var talið skylt að af­henda gögn máls­ins var sú að fyr­ir­tæk­in fengu eng­an rök­stuðning fyr­ir ein­kunna­gjöf­inni sem réði því hvort þau fengju versl­un­ar­pláss. Til þess að geta áttað sig á rök­semd­un­um hafi fyr­ir­tæk­inu því verið nauðsyn­legt að sjá sam­an­b­urðinn.

Frétt mbl.is: Isavia höfðar ógildingarmál

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK