Hefja viðræður við Arion banka

Næstu skref eru samningaviðræður við Arion banka. Ef þær ganga …
Næstu skref eru samningaviðræður við Arion banka. Ef þær ganga vel mun Arion banki geta hafið starfsemi í flugstöðinni eftir um hálft ár. mbl.is/SBS

Arion banki hlaut hæstu einkunn í samkeppni um rekstur fjármálaþjónustu í Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Alls bárust fimm umsóknir. Næsta stig valferlisins er samningaviðræður á milli Isavia og Arion banka.

Fram kemur í tilkynningu frá Isavia að valnefnd hafi farið yfir gögn sem send voru inn. 

„Alls bárust fimm umsóknir í samkeppnina sem auglýst var á Evrópska efnahagssvæðinu og fékk Arion banki hæstu einkunn. Starfsemin felst aðallega í gjaldeyrisþjónustu, rekstri hraðbanka og endurgreiðslu á virðisaukaskatti.

Eins og áður segir eru næstu skref samningaviðræður við Arion banka. Ef þær ganga vel mun Arion banki geta hafið starfsemi eftir um hálft ár. Ef aðilar ná ekki saman verður rætt við það fyrirtæki sem fékk næsthæstu einkunn.

Fimm tilboð bárust, þrjú frá íslenskum fjármálafyrirtækjum, eitt sameiginlegt frá íslensku og erlendu fyrirtæki og eitt frá erlendu fyrirtæki,“ segir í tilkynningunni.   

Þátttakendur í samkeppninni voru í stafrófsröð:

  • Arion banki
  • Global Exchange Foreign Exchange Services
  • Íslandsbanki
  • Landsbankinn
  • Unicâmbio og iKort
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK