Umsögn yfirstjórnar á eftir áætlun

Seðalabanki íslands
Seðalabanki íslands mbl.is/Ernir Eyjólfsson

Greinargerð yfirstjórnar Seðlabanka Íslands um bréf umboðsmanns Alþingis sem varðar m.a. gjald­eyris­eft­ir­lit, und­anþágu­beiðnir og gjald­eyr­is­rann­sóknir liggur fyrir í drögum og unnið er að endanlegri útgáfu.

Bankaráð óskaði eftir umsögn yfirstjórnar um bréfið í lok október og átti hún að liggja fyrir eigi síðar en 10. desember. Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Íslands lágu drögin fyrir á þessum tíma en endanleg útgáfa er ekki tilbúin. Ekki er því hægt að veita frekari upplýsingar um greinargerðina að svo stöddu.

Frétt mbl.is: Vill umsögn yfirstjórnar bankans

Í yfirlýsingu sem bankinn sendi frá sér í lok október kom fram að bankaráðið telji „að bréfið gefi ráðinu til­efni til að láta gera óháða út­tekt, með hliðsjón af gild­andi lög­um og regl­um á hverj­um tíma, á stjórn­sýslu Seðlabank­ans við fram­kvæmd gjald­eyris­eft­ir­lits, und­anþágu­beiðna og gjald­eyr­is­rann­sókna.“

Til­gang­ur út­tekt­ar­inn­ar verði meðal ann­ars að skoða hvort ástæða sé til „að skýra æski­legt verksvið og laga­heim­ild­ir bank­ans á þess­um sviðum og sett­ar fram til­lög­ur til úr­bóta eft­ir því sem þörf kref­ur.“

Már Guðmundsson, seðlabankastjóri.
Már Guðmundsson, seðlabankastjóri. mbl.is/Ómar Óskarsson
mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK