Ríkið semur við WOW Air

Freyja, flugvél WOW.
Freyja, flugvél WOW. mbl.is/Golli

Ríkið mun ganga til samninga við flugfélagið WOW Air vegna farmiðakaupa til tveggja áfangastaða. Boðnar voru út flugferðir á þrjá algengustu áfangastaði starfsmanna ráðuneytanna og barst eitt tilboð, frá WOW Air, til tveggja áfangastaða og var það samþykkt.

Þetta kemur fram á vef fjármálaráðuneytisins. Þar segir að Stjórnarráðið hafi undanfarið unnið markvisst að endurskipulagningu innkaupa á flugmiðum. Aukið hagræði við innkaupin næst með miðlægum farmiðainnkaupum hjá Rekstrarfélagi stjórnarráðsins, sem nú eru hafin. Þá var auglýst útboð vegna farmiðakaupa hjá Ríkiskaupum í febrúar síðastliðnum. Útboðinu var skipt upp í tvo flokka. Annars vegar var boðinn út tiltekinn fjöldi miða til og frá Íslandi á algengustu áfangastaði og eins og fyrr segir gerði WOW Air tilboð í flugmiða til tveggja áfangastaða.

Þá sóttist Stjórnarráðið jafnframt eftir því að tryggja afsláttarkjör á hverjum tíma á alla áfangastaði og var forsenda þess hluta útboðsins að samkeppni yrði innan samnings á milli samningsaðila. Bárust tilboð frá Icelandair og WOW Air en mat Ríkiskaupa, sem sá um útboðið, var að tilboð Icelandair væri ógilt.

„Þar sem einungis eitt tilboð var dæmt gilt eru grunnforsendur þessa hluta útboðsins um að samið yrði við fleiri en einn og að innbyrðis samkeppni yrði á hverjum tíma um hagstæðustu kjör, ekki uppfylltar,“ segir á vef fjármálaráðuneytisins.

Tilhögun útboðs Stjórnarráðsins á farmiðum byggðist á niðurstöðum ítarlegrar greiningar á ferðatilhögun starfsmanna Stjórnarráðsins sem gerð var til þess að meta hvaða þarfir þyrfti að uppfylla. Meðal annars voru kannaðir helstu áfangastaðir, framhaldsflug, lengd ferða og tímasetningar. Auk þess var fundað með fulltrúum stærstu seljenda.

Unnið er að  undirbúningi á útboði á flugfarmiðum fyrir stofnanir ríkisins. Stjórnarráðið hyggst taka þátt í því útboði þar sem ekki náðist að semja um almenn afsláttarkjör í nýafloknu útboði. Horft verður til reynslunnar af þessu útboði við mótun þeirra skilyrða sem lögð verða fram í útboðinu í þeim tilgangi að ná fram hagkvæmni í innkaupum og flugfarmiðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Loka