Kynna gervigreindarlausn sem talar íslensku

Advania hefur kynnt til leiks nýja gervigreindarlausn.
Advania hefur kynnt til leiks nýja gervigreindarlausn. Ljósmynd/Aðsend

Advania hefur kynnt til leiks gervigreindarlausn sem talar á íslensku og ensku. Lausnin ber nafnið eya og er byggð á Chat GPT-4-mállíkaninu frá OpenAI.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Advania.

„Spunagreindarlausnin talar íslensku og ensku og gerir fólki kleift að nýta gögn á öruggan og hagnýtan hátt. Eya nýtir nýjustu tækni til að veita nákvæm og viðeigandi svör og skilur líka flóknar skipanir og heldur þræði sem uppfærist þegar undirliggjandi gögn breytast,“ segir í tilkynningunni.

Gögnum ekki deilt með OpenAI

Fram kemur að þegar íslensk fyrirtæki innleiði eya sé spunagreindarlausnin alfarið í umhverfi fyrirtækisins. Öll gögn séu geymd í hýsingarumhverfi viðkomandi fyrirtækis og engum gögnum er deilt á netinu eða með OpenAI.

Þá eru gögnin ekki notuð til að þjálfa líkön eða bæta þjónustuna eins og tíðkast í öðrum gervigreindarbúnaði og eiga því gögnin að haldast örugg, að því er kemur fram í tilkynningunni.

„Við höfum unnið hörðum höndum að þessu verkefni og ég veit að lausnin mun gagnast okkar viðskiptavinum og gæða gögn þeirra nýju lífi. Þetta geta þau nú gert, fullviss um öryggi sinna gagna. Fyrirtæki geta nú nýtt þessa krafta til að fá nýtt og öflugt innsæi í eigin rekstur til að efla nýsköpun og tækifæri,“ er haft eftir Ægi Má Þórissyni forstjóra Advania á Íslandi.

Upplýsingarnar dulkóðaðar

Lausnin eya leggur sérstaka áherslu á að vernda inntak samtala og öll viðkvæm gögn sem notendur setja í lausnina.

„Upplýsingar eru dulkóðaðar og ströng öryggisstefna Advania tryggir að allar upplýsingar eru öruggar og meðhöndlaðar með fullum trúnaði,“ segir í tilkynningunni.

Fram kemur að mikil viðskiptaáhætta sé fólgin í notkun ChatGPT þar sem öll þau gögn sem almenna ChatGPT vinnur á eru notuð til að þjálfa líkönin enn frekar og þar með eru þau orðin opin á Internetinu. Þess vegna hafa mörg fyrirtæki lagt bann við notkun ChatGPT á viðkvæm gögn, segir í tilkynningunni.

„Ég er ótrúlega stolt af starfsfólkinu okkar og eya er flott lausn sem byggir á GPT-4 mállíkaninu frá OpenAI. Við lögðum upp með að vera með einfalda og hagnýta lausn sem auðvelt er að innleiða og skapar fljótt virði fyrir notendur,“ er haft eftir Sigríði Síu Þórðardóttur framkvæmdastjóra viðskiptalausna Advania.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK