Hafa innleitt stafrænar stefnubirtingar

Dagbjört Hauksdóttir, forstöðumaður löginnheimtu Gjaldskila, og Margrét Anna Einarsdóttir, stofnandi …
Dagbjört Hauksdóttir, forstöðumaður löginnheimtu Gjaldskila, og Margrét Anna Einarsdóttir, stofnandi og framkvæmdastjóri Justikal. Ljósmynd/Aðsend

Innheimtufyrirtækið Gjaldskil hefur innleitt stafrænar stefnubirtingar frá hugbúnaðarfyrirtækinu Justikal. Er markmiðið að gera málsmeðferð fyrir dómi hraðari, þægilegri og öruggari.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Justikal.

„Við viljum gera notendum kleift að vinna með nútímalegri vinnubrögðum en áður og liður í þeirri vegferð er að geta birt stefnur með rafrænum hætti. Markmið okkar og Gjaldskila fara ákaflega vel saman en bæði félögin vilja fara umhverfisvænni og skilvirkari leiðir og okkur hlakkar til að sjá samstarfið blómstra,“ er haft eftir Margréti Önnu Einarsdóttur, stofnanda og framkvæmdastjóra Justikal.

Lækkar kostnað greiðenda

Í tilkynningunni kemur fram að Gjaldskil bjóði upp á heildstæðar lausnir við innheimtu krafna, allt frá fruminnheimtu til löginnheimtu. Þá hefur félagið sérhæft sig í grænum lausnum í kröfustýringu og innheimtu.

„Stefna Gjaldskila Debitum er að vera fremstir innheimtuaðila í rafrænum og skilvirkum lausnum. Félagið var fyrst til að innleiða að fullu rafrænt innheimtuferli og er rafræn birting á greiðsluáskorunum og stefnum í samstarfi við Justikal liður í þeirri vegferð.

Með þessu viljum við tryggja að birtingar berist hratt og örugglega til réttra aðila, ásamt því að lækka kostnað greiðenda,“ er haft eftir Dagbjörtu Hauksdóttur, forstöðumanni löginnheimtu Gjaldskila.

mbl.is
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK
Fleira áhugavert
  ISK
  USD
  EUR
  GBP
  CAD
  DKK
  NOK
  SEK